Við höfum komið okkur fyrir í hjarta Reykjavíkur, á Laugavegi 55, þar sem hægt er að hverfa inn í garð frá erli dagsins. Veitingastaðurinn Volare gefur þér tækifæri til að yfirgefa Reykjavík og upplifa dæmigert afslappað andrúmsloft, sem þú myndir búast við í Suður-Frakklandi og niður Ítalíuskagann. Ljós og hitalampar lýsa upp garðinn...Rólegt umhverfi með ítalskri tónlist, gott rauðvín og afbragðs úrval rétta fyrir alla bragðlauka, vel fram borið með afslöppuðum hætti.
Volare fjölskyldan hefur tilfinningu fyrir einföldum frumleika, sem kemur með andrúmsloftinu.
Matseðillinn er síbreytilegur til að geta alltaf boðið upp á nýtt og ferskt hráefni, og svo förum við eftir því sem vindurinn blæs matreiðslumeistaranum í brjóst hverju sinni. Allt sem þú þarft að gera, er að taka það rólega og láta okkur gera okkar bezta, þú átt það skilið!
En umfram allt, við stillum verðlagningu í hóf, því við viljum sjá þig aftur!